þvílík þrjóska

je minn eini hvernig getur svona gerst þó svo að konan hafi neitað umönnun og verandi inn á stofnun? Að sjúkraliðar hafi geta látið þetta viðgangast er ekki í lagi æ kannski erfitt mál en sorglegt að svona geti skeð úffSick Crying
mbl.is Gréri föst við dýnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Ekki öll vitleysan eins. Hvað var hún þá að gera á hjúkrunarheimili ef hún vildi ekki aðstoð og ummönnun ?

Svona fréttir pirra mann bara og skemma daginn  

M, 6.11.2008 kl. 11:26

2 Smámynd: Brynja skordal

M.. já segðu

Brynja skordal, 6.11.2008 kl. 11:33

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gud minn gódur ...Hefdi audvitad átt ad tilkynna tetta til yfirmanna.Skelfilegt.

Gudrún Hauksdótttir, 6.11.2008 kl. 11:54

4 identicon

Það er greinilegt að vandinn var líka andlegur og það er því miður svona í fleiri löndum en Íslandi.Þar sem andlega veikir fá ekki aðstoð.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 13:20

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Mér dettur nú helst í hug þarfir þessarar konu á salerni ekki getur verið að hún hafi látið það eftir sér ef hún gréri föst við dínuna, þannig að hún hefur legið hlandi og skít í mörg ár  Ekki finnst mér þetta mjög trúverðug frétt

Guðborg Eyjólfsdóttir, 6.11.2008 kl. 13:36

6 identicon

Sem sjúkraliði er ég ekki alveg að skilja þetta. Maður hefur oft á sínum starfsferli lent í sjúklingum, sem hafa ekki viljað láta annast um sig. En alltaf hefur nú einhvernveginn tekist að gera viðkomandi til góða, þá helst með því að tala manneskjuna til, koma fram við sjúklinginn með virðingu og umhyggju að leiðarljósi.

Knús á þig, kæra vinkona

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 13:37

7 Smámynd: JEG

Bíddu er ekki 2008 ??? gerist svona nú til dags í þessu velmegunargóðæri ??? Ojjjj bara ef þetta er satt.  Skelfilegt bara.

Knús á þig essgan. 

JEG, 6.11.2008 kl. 14:15

8 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Ha ha Þetta er nú típiskt  norskt að koma með svona fréttir. Hverjir verða nú dregnir til ábyrgðar,.. Við vitum að ekki er hægt að taka ráðin af fólki, en það eru náttúrulega  takmörk. Þetta er gott dæmi um þá  hasar fréttamennsku  sem er mjög mikil hér í noregi oft til góðs enn oft hefur bara verið uppblástar kjaftasögur.  Að konan hafi gróið við dynuna,þetta gleypi ég ekki hrátt.      Hafðu það sem best ljúfan.   Kv.Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 6.11.2008 kl. 15:58

9 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, þetta er skelfilegt en þannig er það nú víst að fólk getur neitað að þiggja þá umönnun sem læknar og hjúkrunarfólk býður og lagalega þá má ekki neyða það til að þiggja hana.

Steingerður Steinarsdóttir, 6.11.2008 kl. 16:20

10 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

OMG - er þetta hægt.....

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 6.11.2008 kl. 17:11

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skrýtið mál.

Stórt knús

Kristín Katla Árnadóttir, 6.11.2008 kl. 17:27

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Furðulegt mál og eitthvað bogið við  fréttaflutning

Sigrún Jónsdóttir, 6.11.2008 kl. 18:16

13 Smámynd: Hulla Dan

Já halló...

Hulla Dan, 6.11.2008 kl. 19:33

14 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Lagalegur réttur sjúklinga virðist virtur þarna, svo einfalt er það. Ég hjó eftir eftirfarandi hjá Steingerði; ,,þetta er skelfilegt en þannig er það nú víst að fólk getur neitað að þiggja þá umönnun sem læknar og hjúkrunarfólk býður og lagalega þá má ekki neyða það til að þiggja hana." 

Þetta er mjög algengur misskilingur í  þessum málum. 

ÚFF!!!! mér varð bilt við og illt í hjartanu. Sjúklingum ber nefnilega engin skylda til að samþykkja það sem fyrir er hann lagt, hann hefur hins vegar rétt á því. Þarna er grundvallarmunur.

Málið er nefnilega þannig að með lögum um réttindi sjúklinga er búið að tryggja sjúklingar sem taldir eru andlega og/eða líkamlega heilbrigðir til að taka sjálftæðar ákvarðanir, eigi rétt til að þiggja og/eða hafna þeirri meðferð sem læknar og hjúkrunarfræðingar bjóða þeim. Það er löngu liðin tíð að hrilbrigðisstarfsfólk taki allar ákvarðanir um meðferð. Mörgum hverjum hefur gengið illa að skilja og jafnvel virða þennan rétt sjúklinga. Er sjúklingur alltaf spurður hvort hann sé tilbúinn til að fara í turtu kl. 9? eða á W.C fyrir mat, af því að það hentar deildarrútínunni? Ræður sjúklingur alltaf um það hvað hann fær í matinn?  Forræðishyggjan er nefnilega ani rík í okkur ennþá. Heilbrigðisstarfsfólk telur sig oft vita betur en sjúklingur og aðstandendur þannig að ráðin eru æði oft teki af þeim.

Hitt er svo annað mál að þetta umrædda atvik ætti að vera tilkynningaskylt, að því leytinu til að skráð sé í allar skýrslur hver ákvörðun sjúklingsins er.  Læknar hafa þann möguleika að ,,taka fram fyrir hendur á sínum sjúkling" ef hann er talinn ógna heilsu sinni eða annarra og þarna kemur réttur aðstandenda einnig til. Eins og fréttin er kynnt eru ekki nægar forsendur til að vera viss en óneitanlega er þetta sláandi og hálf óhugnanlega frétt.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.11.2008 kl. 19:35

15 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Er nú ekki alveg að trúa þessu örugglega eitthvað orðum aukið,en skelfilegt ef satt er,kveðja til þín inn í nóttina ljúfust,vonandi kemst tölvugreyið mitt í lag fljótlega svo ég geti nú farið að vera í sambandi

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 6.11.2008 kl. 23:56

16 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

óhugnanleg frétt ef hún er sönn, helgarknús í þitt hús.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.11.2008 kl. 00:37

17 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Er þetta hér á Íslandi trúi því ekki .Held að það hljóti að vera til einhver ráð við svona hér En góða nótt mín kæra Brynja Skóladaman sem er stillt í tímum

Ólöf Karlsdóttir, 7.11.2008 kl. 00:53

18 Smámynd: Anna Guðný

Sem betur fer hef ég ekki heyrt um svona áður en get trúað því að stundum fari eitthvað út í algjöra vitleysu þegar svona aðstæður koma upp. En einmitt einsog fleiri segja hérna, á auðvitað að tilkynna.

Eigðu góða helgi Brynja mín

Anna Guðný , 7.11.2008 kl. 07:35

19 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góðan daginn Brynja mín. Er þetta virkilega sönn saga, þetta er hríllíngur í einu orði sagt ef satt er.

Kærleikur til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 7.11.2008 kl. 09:37

20 Smámynd: Tína

Svona nokkuð er óskiljanlegt með öllu. En hvað grey konan hlýtur að vera einmana. Trúi ekki öðru en að ef hún ætti einhverja fjölskyldu, þá hefðu þeir gert eitthvað.

Knús á þig krútta og góða helgi.

P.s Þú vilt ekki skella þér austur annað hvort á morgun eða mánudaginn???

Tína, 7.11.2008 kl. 10:05

21 Smámynd: Dóra

Takk fyrir vinskapinn.. Eigðu góða helgi.. kærleikskveðja frá Dk Dóra

Dóra, 7.11.2008 kl. 10:18

22 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Sammála þér.

Sammála þér.Góðan daginn flotta kona

Anna Ragna Alexandersdóttir, 7.11.2008 kl. 11:02

23 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta er sorgleg saga, en þarna er verið að halda í heiðri rétti einstaklingsins til að ráða sér  sjálft, en það getur farið út í öfgar eins og annað, í lýðræðisþjóðfélagi.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.11.2008 kl. 21:04

24 Smámynd: Sigrún Óskars

þetta er örugglega vitlaus þýðing - einhver er að þýða sem hann hefur ekki hundsvit á. Líklega sá sami og þýðir stjörnuspánna - hún er stundum "út úr kú".

Hafðu það gott og sendi helgarknús uppá Skaga

Sigrún Óskars, 7.11.2008 kl. 22:44

25 Smámynd: egvania

Mér er spurn hvernig lyktaði deildin sem að konu kindin lá á ?

Knús

egvania, 8.11.2008 kl. 23:35

26 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Ólöf Karlsdóttir, 9.11.2008 kl. 03:44

27 Smámynd: Helga skjol

Hið undarlegasta mál, svei mér þá.

Knús á þig

Helga skjol, 9.11.2008 kl. 10:29

28 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Góða nótt mín kæra

Ólöf Karlsdóttir, 9.11.2008 kl. 23:44

29 Smámynd: Solla Guðjóns

USSSSS

Solla Guðjóns, 10.11.2008 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Brynja skordal
Brynja skordal
Ég er 6 barna Mamma á skaganum með meiru og á líka 2 ömmukríli

brynja_har@hotmail.com

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 95625

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband