Húmar að kveldi..

Flottur dagur í dag hún Elskuleg móðir mín átti Afmæli og skruppum við til hennar og pabba um 5 leitið í dag í kaffi og meðlæti þar var slatti af mínu fólki áttum öll yndislega stund saman mikið spjallað Til hamingju Mamma mín þú ert bestHeart Kissing  Góða nótt og hafið öll gleðilegan dagSleeping

Góður sunnudagur...

Allir vöknuðu hér hressir og kátir í morgun síðan um hádegisbil var farið að hafa sig til fyrir Messuferð í kirkjuna okkar í dag var hið árlega Bjargarkaffi eftir messu þá er hlaðborð af kökukræsingum þegar messu er lokið séra Pétur í óháða er með skemmtilegustu messur sem ég hef verið í og tekur hann ávalt upp sinn gítar og syngur með krökkunum og trallar þeim til mikillar ánægju og flest öll fermingar börnin mættu líka minn strákur fermist næsta sunnudag og var verið að ræða við okkur um lokaundirbúning..

Eftir allt kökuátið var brunað í smáralindina til að versla Fermingaföt á drenginn og eftir mikið labb og pælingar tókst okkur að finna allt nema skóna þeir verða væntanlega bara keyptir hér á skaganum enda vill hann ekki einhverja spariskó heldur svona sem hann getur notað líka hversdags eftir ferminguna(hann ræður núna) Annað er svona allt að smella saman smotterí eftir sem verður klárað í vikunni er nú ekkert að stressa mig þetta kemur allt saman enda orðin vönWink

Fengum okkur ís á leiðinni heim í mosó síðan er ég bara búinn að liggja á meltunni eftir allt kökuátið úff maður verður einhvern veginn svo uppþanin af þessum kökum og lengi saddur en hafiði tekið eftir því hvað maður verður þyrstur eftir svona kökur þamba endalaust vatnWoundering hafið góðar stundir yndislegu bloggvinirHeart


Nafnið er....

Já ekkert kemur manni á óvart lengur í sambandi við nafnagjöf á börnum nú til dags....þetta slær held ég öllu við að nefna börn sín eftir áfengum drykkjum einu sinni var Miller minn uppáhalds bjór en að sonur minn fengi nafnið á honum held ekki skoW00t  Eða smirnoff ice irish coffy og hvað þetta heitir allt saman en já margt er skrítið í þessu hver er ykkar uppáhalds drykkur og hefur komið til tals að nefna börnin ykkar eftir þeim spurning skoErrm
mbl.is Vill nefna soninn eftir uppáhalds bjórnum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt fyrir ástina..

já þetta ku vera gott fyrir heilsuna fínt að versla svona hluti með lyfjunum án þess að þurfa láta sjá sig koma út úr búðum sem sumir læðast með veggjum hver ætlar til svíþjóð í sumarW00t


mbl.is Sænsk apótek selja titrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu góðar eiginkonur eru þið já maður spyr sig??;)

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karmönnum nauðsynlegt.

2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.

4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.

6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.

8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.

9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.


(Úr kennslubók í heimilisfræði síðan 1950.)

Æðislegur

Rosalega fannst mér þessi strákur flottur í Idolinu í kvöld flottur söngvari svo mikið krútt ekki auðvelt lag að syngja æðislegur baraHeart


Risa barn



Vá 20 kg 7 mánaða skil reyndar ekki hvað er sagt þarna og af hverju barnið er svona en mikið hlýtur þetta að vera erfitt fyrir Elsku barniðWoundering

úff

Ekki fyrir Flughrædda að sjá þettaFrown  En gott að allt fór velHeart
mbl.is Lá við flugslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegt veður

já ekki hægt að seigja annað en það sé fallegt veður á skaganum í dag sól skín og alveg lognKissing fórum til rvk í gær þá var nú ekki svona mikil blíða skafrenningur og mikil hálka en létum okkur hafa það þurfti að fara velja Servéttur kerti og þetta dæmi allt fyrir fermingu sonarins sem verður 16 mars mátti ekki seinni vera með áprentun á þetta en það slapp fyrir horn verður til fyrir fermingu prinsinn minn vildi alls ekki koma með þolir ekki að fara í búðir(karmaður sko) en valdi samt bláan lit á allt Mömmu sinni til mikillar ánægju því ég er búinn að láta ferma 4 stelpur svo það er gaman að geta haft bláa litinnW00t

En hann verður nú að koma með okkur á næstu helgi því þá ætla ég að láta hann versla Fermingafötin svo betra að hafa hann með í þeim ráðumWink verð ánægð þegar þetta verður búið svona fyrir páska þá verður slappað af og gert eitthvað skemmtilegt með fjölsk njótið dagsins sem hafið gott veðurHeart


Ljúft skal það vera..

þetta Laugardagskvöld hér á bæ börnin öll að heiman já ekki skeð í ár og aldir að við séum bara ein að rolast hér enda þögnin svo mikil ekkert suð og tuðW00t en þess skal notið í botn svo rólegt er að kallinn er sofnaður í Lazy boy yfir einhverju leiðinlegu hlýtur að vera og ég bara að tölvastFootinMouth En reyndar er ein dótla mín að vinna til kl 1 í nótt þannig að hún kemur heim hin verða sótt í hádeginu á morgun en samt er yngsta svo mikil mömmustelpa að hún gæti átt eftir að láta sækja sig kemur í ljósHeart það er best að fara að njóta þess að hlusta á þögnina meðan hún erKissing


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Brynja skordal
Brynja skordal
Ég er 6 barna Mamma á skaganum með meiru og á líka 2 ömmukríli

brynja_har@hotmail.com

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband